Svið, kollur, kassagítar
Lítil mús labbar inn á sviðið
hneigir sig, tekur upp gítarinn og fær sér sæti.
Þögn
Við heyrum flamenco tónlist (hljómar yfir allan heiminn)
Músin spilar einstaklega fallega
Hún er svo einbeitt að hún tekur ekki eftir neinu í kringum sig.
Köttur (melankólískur) gengur inn á sviðið
hann dokar við, byrjar svo að hringsóla músina, labbar hring eftir hring.
Tónlistin nær hápunkti (el crescendo)
Kötturinn stoppar fyrir framan músina, gleypir hana í heilu lagi
Þögn (heimurinn er orðinn hljóður)
Kötturinn ropar
Tjaldið
Þórhallur ratóngato
Innsent 27.1.2026, birt 27.1.2025