Sitji guðs irmlar
saman í keng
jörðinni yfir (minnir mig)
al-irmillinn
and-irmillinn
skapaði heiminn
með þriggja daga
fyrirvara
Agnar Smár hét hann (og heitir?)
hann forhertist við allt áreiti
svo ennishrukkurnar urðu að
klettum fellum hellum dölum
annars er fátt vitað um Agnar
því hann segir ansi lítið
feimið gerpi
irmlið engdist um
í ó-irmlaða tóminu
brúngræn kúkaþoka
mjólkurskán
þar til
búmm
krass
bæng
ryk þyrlast í augu sögumanns og þegar hann nær loks áttum er hann staddur á það-sem-við-þekkjum sem Jörð en fyrir honum er aðeins brúngrænn blettur á enn stærri bláum bletti
á hnetti
Háfleygur Þjálsson
Innsent 3.5.2026, birt 3.5.2026