Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Annað tölublað er komið út, endilega sendið inn efni fyrir þriðja tölublað á listanes.office@gmail.com 
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

Í LEIT AÐ MÖNNUM Í MANNHEIMUM

Ég er staddur í Þýskalandi, 80 kílómetrum suður af Frankfurt, í hinni evrópsku innlands-hafnarborg Mannheim. Borgin er hvað þekktust fyrir að vera helsta fyrirmynd Manhattan þegar kemur að borgarskipulagi, þ.e. hún er svo rúðustrikuð að hún er jafnan kölluð „ferningaborgin“. En ef ég leyfi mér að vitna í Veru Illugadóttur, þá er það önnur saga.

Við Max félagi minn erum í hinu unga og líflega Jungbusch hverfi, sem fyllist af næturlífi um helgar. Það mætti þó segja að mannlíf sé af skornum skammti í Mannheim, þar sem flestir staðir standa tómir á besta tíma. Því má draga nafn borgarinnar sjálfrar í efa, Mannheimar þar sem varla nokkurn mann er að finna.

Við erum þó í leit að stað sem við höfum heyrt að hýsi fólk. Vandamálið er að staðurinn er hvergi að finna á netinu, við höfum aðeins hnit til að styðjast við. Þegar við komum að rétta húsinu blasir við okkur dimmt húsasund. Við lítum hvor á annan, yppum öxlum og göngum inn. Við heyrum mannamál en sjáum engan. Við opnum hurð innst í sundinu og stöndum þá skyndilega inni í hnefaleikasal. Þar mæta okkur rauðar og bláar svampdýnur á gólfum, boxpúðar og lóð. Við höldum lengra inn og fylgjum tröppum upp að stórri hurð. Við opnum hana og sjón er sögu ríkari, ungt fólk reykjandi inni og drekkandi ódýran Helles flöskubjór undir góðri tónlist.

Í horninu stendur foosballborð, þakið límmiðum með pólitískum skilaboðum á borð við FCK AFD og Nazis töten. Ég plata Max til að skora á Þjóðverjana í leik, en þá tek ég eftir límmiða sem sker sig sérstaklega úr í horninu, KSÍ. Þarna er ég staddur á bar í dimmu húsasundi yfir hnefaleikasal sem finnst ekki á Google Maps í borg sem manna er hvergi að finna og rekst á skjaldarmerki Knattspyrnusambands Íslands.



Dagur A. Eggertsson
Innsent 18.2.2026, birt 23.2.2026

© Krant 2025