Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er komið í búðir, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

Á VAKTINNI


Sjálfstæðisflokkurinn er í lykilstöðu í Reykjavík og víðar en náði líka hreinum meirihluta sums staðar. Miðflokkurinn bætti við sig 17 fulltrúum á landsvísu. Samfylkingin fær fleiri fulltrúa en í kosningunum 2022, en fékk slæma útkomu í Reykjavík og Hafnarfirði. „Þetta er í raun og veru stórkostleg niðurstaða“ Bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknarflokksins segir niðurstöðu kosninganna stórkostlega. „Kannski er minn tími kominn“. Oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segir greinilega hægri sveiflu sjást í niðurstöðum á ýmsum stöðum en hann kveðst bjartsýnn á að jafnaðarmenn bæti við sig í næstu kosningum. Oddviti Skúbbídúbb-listans ósáttur með niðurstöðurnar. 700% minna fylgi hjá Piss-lista en í seinustu kosningum. „Þetta er breiðfylking”, segir manneskja í breiðfylkingu. „Við erum mjög sátt, en auðvitað er þetta smá skellur”. Oddviti Flokks-listans fær 2 atkvæði og segist vera sátt, en hafa orðið fyrir smá vonbrigðum. Listaflokkurinn fær engin atkvæði. „Þetta var svokallaður gjörningur”. Oddviti Listaflokksins segir framboð sitt hafa verið „gjörningur” og að þetta hafi „allt farið eftir áætlun”. Leppalúði ósáttur með niðurstöðurnar. „Mér finnst þetta vera sorglegt, mjög sorglegt. Mér finnst þetta nánar tiltekið ekki skemmtilegt, en ég er nú bara Leppalúði”. 



Ekki Leppalúði
Innsent 17.5.2026, birt 17.5.2026

© Krant 2026