Ég get ekki ákveðið hvort mig langi að eignast barn
eða hvort það myndi þreyta mig of mikið,
subba út heimilið mitt
það væri samt svo kósí að kúra með því
horfa á netflix og chilla saman
hafa einhvern til að lyfta þungum hlutum fyrir mig og skrúfa upp hillur
en svo þarf að skera matinn svo smátt ofan í þau,
kenna þeim að hlusta og vera góð við aðra
yrði ég meira einmana með barninu en ein?
Kannski er maður þarna úti fyrir mig sem vill líka eignast barn
sæta stelpu sem hann getur útskýrt hluti fyrir
sem horfir á hann aðdáunaraugum en efast um sjálfa sig
dúllu í dúllufötum sem dúllar sér í stólnum sínum á meðan hann drekkur kaffi með strákunum
pössunarpíu sem hann getur passað upp á
er einhver með góð ráð eða sætar myndir af börnunum sínum?
bkv.,
María
Innsent 14.4.2026, birt 15.4.2026