Ikarus, Ikarus, Ikarus… Ég kann mér ekki hóf. Ég gabbaði greyið hana mömmu mína og fékk hana til þess að kaupa handa mér sósu. Ég nýtti mér það að mamma mín er bóngóð kona og sannfærði hana um að ég þyrfti að fá að smakka Jhonny’s classic ranch dressing and dip. Og ekki nóg með það, ég sagði henni að ég myndi klára allann brúsann því að ég var svo viss um að mér þætti þetta gott. Ég leyfði Bandarískum ipad heilaormi að skríða inn í eyrað mitt inn og inn og alveg inn í heilann… Þar bónaði hann og bónaði þar til heilinn var orðinn sleipur og kúlulaga, svo rúllaði hann kúlunni alla leiðina í Costco. Nú hafa liðið sjö mánuðir síðan ég laug upp í opið geðið á mömmu minni… Það sést ekki högg á vatni… Þessi flaska er holdgervingur skuggans sem býr innra með mér, og tákn ofsagræðginar sem hrjáir okkur öll.
- Jórunn Elenóra
Innsent 28.3.2026, birt 29.3.2026