KVÖLDMATUR 9. MARS - EINFALT OF SUMARLEGT SALAT MEÐ SÆTUM KARTÖFLUM :P
Í dag voru 17 gráður í ‘twerpsittí. Við TVO vorum löt að elda og löt að fara í búðina þannig við gerðum ggggjað einfalda máltíð úr því sem við áttum. Hún var svo nammigóð og einföld að ég stóðst ekki mátið að skella henni inn á krantið :-)
Inn í ofn
- Sætar kartöflur skornar í skífur eða ágætlega stóra bita.
- Litlir tómatar skornir í helming
- Olífuolía
- Hunang
- Krydd:
Kanill
Múskat
Kúmen
Túrmerik
Chiliduft
Salt og pipar
Grænmetinu er raðað á ofnplötu, látið skornu hliðina á tómötunum snúa upp. Sulla olíu og hunangi yfir og krydda. Eldað inn í ofni þar til tilbúið (30-40 mín)
Bragðbætir
- Smátt saxaðar súrar gúrku
- Smátt saxaðar confit-sítrónur
- Saxað kóríander
- Saxaður hvítlaukur
- Jómfrúarolía
- Sítrónusafi
- Salt og pipar
- Edik úr súrgúrku krukkunni
- Safinn af confit-sítrónunum
Öllu hrært saman í skál
Kínóa eða perlukúskús
Saxaðar valhnetur (má rista en við nenntum ekki að skíta út pönnuna)
Sýrður rjómi
Svo bara setja í skál og borða!!!
Ég gleymdi alveg að taka mynd af matnum áður en ég borðaði hann allan. En hér eru myndir af confit-sítrónunum, gúrkunum, sýrða rjómanum og restinna af bragðbætinum.
p.s. TVO sá um alla eldamennsku á þessari máltíð, hann á allan heiður skilinn!
Vorkveðjur KBG!!