Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er í vinnslu, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

STULDUR: MÖKÖGGLAR

Vilji maður stela elskan mín, þá á maður fyrir guðs skuld aldrei að stela frá þeim ríku. Ríkur maður á hundrað móköggla, svo veit hann ekki fyr til en það eru eftir níutíú og níu: einum hefur verið stolið. Hann mun ekki einusinni gleyma því á sinni banastund. Fátækur maður á aðeins einn móköggul og er jafn fátækur þó honum sé stolið. Hann er búinn að gleyma því á morgun. Sá ríki kemur þér undantekníngarlaust í bölvun ef þú stelur frá honum, sá fátæki nennir ekki einusinni að minnast á það. Þessvegna hafa allir sannir þjófar vit á að stela frá þeim fátæku. Það eina sem er verulega hættulegt á Íslandi er að stela frá þeim ríku og það eina sem er verulega arðbært á Íslandi það er að stela frá þeim fátæku, elskan mín.


Presturinn
Innsent 4.5.2026, birt 4.5.2026