Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er komið í búðir, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

STJÖRNUMERKJABÓKAMEÐMÆLI


Steingeit
Mér finnst þið svo sniðug og þessi bók er mjög mjög sniðug. Ég myndi aldrei mæla með neinu léttmeti fyrir ykkur en í þessari bók er svo vandað dystópískt konsept sem er svo vel útfært og ég hugsa að það sé skemmtileg að lesa bókina samferða öðrum og pæla saman (ég hefði verið til í að ræða þessa við steingeit eftir á).





Vatnsberi
Þið eigið það til að byrja á bókum sem þið klárið síðan ekki fyrr en af þrjósku nokkrum mánuðum seinna í einum rykk og þá eruð þið einhvern veginn orðin pirruð út í bókina af því hún er búin að vera svo lengi á náttborðinu án þess að veita ykkur neina ánægju eða uppljómun af því þið munið ekki alveg hvað gerðist í byrjun og hver hin og þessi persóna er. En! Þessi bók hér er stutt og hnitmiðuð og svo svo svo sniðug ég lofa. Fullkomin fyrir ykkur til að klára einn tveir og bingó og svo pæla í í langan tíma. 





Fiskur
Þið eruð alltaf thinking too much </3 og það er það sem aðalpersónan G.H. gerir líka í þessari bók. Öll bókin er bara löng buna af hugsunum sem er smá kvíðavaldandi en líka mjög fallegt og áhrifaríkt. Held þið gætuð fílað allt eftir Lispector bara fyi!





Hrútur
Ég hugsa að þið hrútar kunnið að meta vandaða persónusköpun- og þróun og þessi bók er það sinnum þúsund. Svo slá líka persónurnar heimsmet í yearning og þú gætir líka haft gaman af því.





Naut
Vandaður kjarnorkuváarvísindaskáldskapur fer ykkur vel að mínu mati. Þið viljið að það sé nóg til að pæla í bæði á meðan lestri stendur og þegar honum er lokið og þess vegna er þessi fyrir ykkur.





Tvíburi
Ykkur finnst gaman þegar það er gaman! Og þessi bók er bara gaman og fyndin og silly og sniðug!
 




Krabbi
Ég mæli með leigjandanum fyrir ykkur kæru krabbar af því þið eruð oft alveg óvart komin í eitthvað ábyrgðarhlutverk og þegar hlutir eru ekki að fara eins og þið hefðuð ímyndað ykkur þá er allt smá ómögulegt alveg eins og kemur fyrir sögupersónu þessarar bókar. En ykkur finnst líka gaman að vera komið á óvart og ég myndi aldrei mæla með bók sem er bara eitthvað þetta gerðist og þetta gerðist heldur fílið þið bækur sem eru eitthvað svona wow ......
 




Ljón
Frábærar persónur og margar frábærlega vel skrifaðar efnisgreinar sem er hægt að lesa oft oft. Fyndin og skrítin og hjartnæm. Í bókinni eru töfrar og Napóleon Bónaparte og vangaveltur um trú og people in loooove og margt frábært sem ég held þið gætuð fílað.





Meyja
Bók sem krefst þess að maður les hægt og vandlega. Hér er enginn hasar eða læti, bara mjög mjög vandaður rytmískur prósi. Ein mest gefandi lestrarupplifun sem ég hef átt og ég held að af öllum mynduð þið mest kunna að meta þessa.





Vog
Þið elskið að slúðra hvort sem þið viðurkennið það eða ekki og þess vegna er þessi bók fyrir ykkur. Frábær flétta af fjölskyldudrama með mörgum mjög vel skrifuðum persónum.





Sporðdreki
Ég kann ekki alveg að útskýra af hverju ég elska þessa bók en ég er sporðdreki og þess vegna ætla ég að mæla með henni við ykkur. Stutt og vel skrifuð (samtölin í þessari eru svo skemmtileg) og skilur eftir smá óþægilega tilfinningu en samt er þessi bók mesta snilld forever.....





Bogmaður
Best að vita ekkert um þessa áður en lestur hefst. Ég ímynda mér að þið kunnið að meta svona minimalískt en vandað plot...... with a twist. 



— Vala
Innsent 6.4.2026, birt 8.4.2026