Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er í prentun, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

SALIDA


Við mér blasir miðaldra karlmaður sem nýtir mitt víða flatlendi í sérkennilega teygju. Teygju sem líkist heldur harmkvæli. Ég veit ekki hvort hann þjáist af sýndarmennsku eða dugnaði. Á minni hægri hönd 
er góðlát kona. Í gluggasætinu situr eiginmaður hennar með neon græna flugkoddan sinn að horfa á mynd í æpadinnum. Síðast liðnar tvær og hálfa klukkustund hefur konan sitið kyrrlát með hendurnar í kjöltu sér, án allrar afþreyingar. Af og til stendur hún þó upp til að ná í snarl fyrir blessaðan eiginmanninn. Hinu megin við ganginn situr gömul lágvaxin kona og biður. Sem hávaxin mannvera hugsa ég alltaf til allra hinna hávöxnu mannveranna í vélinni þegar ég sé svona lágvaxna mannveru hjá neyðarútganginum. Kemst ekki frá því. Við hliðina á lágvöxnu gömlu konunni situr afar sérkennilegur maður. Um leið og við komum upp í loftið dró hann upp ananas í dós, svartan ástaraldin-kóladrykk, snakk, eitthvað í hitaeinangrandi brúsa og samloku löðrandi í majónesi. Þegar flugfreyjurnar komu og buðu farþegum val á milli tvenns konar djús, þáði hann þá báða. Við hliðina á sérkennilega manninum situr afar venjuleg kona. Hún er frekar mikið út fyrir sjónarsvið mitt. Ég fann til með henni þegar sérkennilegi maðurinn snéri sér við til að tala við eiginkonu sýna í sætaröðinni fyrir aftan og tók um leið helminginn af sæti venjulegu konunnar og var nánast ofan á henni í góðar fimm mínútur. Það veldur mér virkilegum áhyggjum að ef eitthvað kæmi fyrir þessa blessuðu flugvél yrðum við bjargvættirnir. Ég, góðláta konan, ósjálfbjarga eiginmaður hennar, gamla lágvaxna konan, sérkennilegi maðurinn og venjulega konan. Þetta er svona martraðarkenndur jónu hringur. Ég á enga samleið með þessu fólki.

Guð blessi þessa flugvél.

Saga Evudóttir
Innsent 14.6.2026, birt 18.6.2026

© Krant 2026