Það leynist margt í skúffunni
hnífapör og fínerí
viskastykki með blúndu í
og jafnvel rest af brokkóli
Baðönd til að kreista í
átta gömul frímerki
króna dönsk með gati í
og síminn þinn sem fannst hvergi
Að finna er í hægra horni
lítið box með tanngóm í
snifsi af týndu stjórnarskránni
og fleira glatað eftir því
Leyniplagg um hvalveiði
sem tengist þjóðarsálinni
og hver í raun er eigandi
af hafsins okkar lífríki
Hættum þessu svínerí
og riftum auðvalds samningi
Það glatast ekki sjálfstæði
með því að kíkja pakkann í
Kannski er eitthvað til í því
að kasta bara krónunni
kveðj´ana með kurt og pí
og gleyma sambandshræðslunni
Sama hvað er gert í því
þá aldeilis þarf nú tiltekt í
okkar ruslaskúffunni
í núverandi ástandi.
Steef van Oosterhout
Innsent 19.8.2026, birt 21.8.2026