MÁLSHÁTTATÍMI
Ég svara kallinu. Hér eru mínir uppáhalds málshættir. Þeir koma víða að, sumir úr bókum sem ég las einhvern tímann. Flestir þeirra komu þó til mín í draumi. Hér koma þeir:
Ósáinn akur er bara tún
Trúgjarn maður er eins og akkeri í heysátu. En hugsandi fífl er eins og tannstöngull í vatnsglasi
Oft heyrist hátt í tómum kofa
Erfitt er að vera bóndi í harðæri
Fylgni er ekki tengd eftirköstum
Lyklaborð eru bara margir takkar, mjög margir takkar á sama staðnum.
Grunnstoðir margra athafna eru margþættar og venslast til vænni haga ef viðunandi skilyrði eru til staðar.
Klukkan verður tvö oftar en einu sinni
Þegar graut ber að borði snarkar í skálum mannanna
Andartak er um það bil
Hvad laver du min skat? Jeg laver hvad jeg laver haver men jeg haver hvad jeg laver…
Kær kveðja frá Íslandi,
Málshallur Runólfsson
Innsent 28.5.2025, birt 28.5.2025