Ég og mýri eigum
langa sögu
höfum rifist.
Mýri stærri en ég
ég fljótari en mýri
hvorugt forskot
Á landareigninni
er líka hús
Hús með þaki
Ég og hús og mýri
náum ekki saman!
Mýri býr til menn
úr jarðefni
Ég breyti þeim í eldsneyti
fyrir vítisvélar
Það sem springur í mýri
springur í mýri
Hús er hlutlaust
(iðjuleysingi, segir mýri)
Mýri vill mig
vill hendi höfuð klof rassgat læri tær
Hús vill hjarta
Ég á ekki hjarta til að gefa
breyti mér í hest
Katla “káta” Gunnarsdóttir
Innsent 30.3.2026, birt 30.3.2026