Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er komið í búðir, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

HÁSKÓLARITGERÐ (INNGANGUR)


Í þessari ritgerð verða hugmyndir um eftirtektarhyggju skoðaðar útfrá rannsóknum Bóhemska heimsspekingssins Fredinger Jörgen Grubels og skrifum franska rithöfundarins Odile d’Auber-Jean de La Maux Le Meaux. Eftirtektarhyggja verður sett í sögulegt samhengi og greind út frá huglægri sagnfræði og aðferðafræði P. F. F. Lucian. 
    Eftirtektarhyggja er hugmyndakerfi sem enn er umdeilt í meginlandsheimspeki en hefur hlotið mikinn meðbyr á undanförnum árum, þá sérstaklega vegna nýrra viðhorfa og breyttu pólitísku ástandi í hinum vestræna heimi (1). Hún segir frá því að athygli hugsandi og þenkjandi veru (veru sem aðgreind er á hinum fyrirbærfræðilega vettvangi frá verundum, staðfestir eigin megund í gegnum sína „náttúru” sem verufræðilegur „hlutur” í skilningi Grubels) sé hægt að skipta í þrjá (mögulega fjóra) hluta: fyrstu persónu athygli, athygli í annarri persónu, athygli í þriðju persónu og svo mögulega athygli í fjórðu persónu. Sá fyrsti á við um athygli sem líkamlegur áverknaður, annar á við um staðsetningu verunnar utan athyglinnar (sem áhorfandi sinnar eigin athygli) og sá þriðji á við um athygli algjörlega utan verunnar, hugmynd sem d’Auber-Jean de La Maux Le Meaux kallar „athygli sögumanns, æðri athygli eða guðlega athygli” (2). Þriðji og seinasti hluti athyglis-skilgreiningu Grubels er talinn torskilinn og óræður þar sem Grubels færir rök fyrir möguleikanum að hægt sé að skilgreina athygli þriðju persónunnar sem fjórðu persónu, en sú hugmynd verður könnuð í þriðja kafla ritgerðarinnar.


Heimildir

1. Guthrie, Macy, Ný hugsun, þýð. Sigríður Aðalsteinsdóttir (L. Forlag, 2021), bls. 13.
2.  d’Auber-Jean de La Maux Le Meaux, Odile, While looking at: Essays on attention and intentionality, þýð. Barney J. Goodman (Blague University Press, 1997), bls. 59.



Nemi Nemandi
Innsent 9.10.2026, birt 9.10.2026

© Krant 2026