„Glaðlega!”
sagði maðurinn með
stóru augu–
augað
og rétti mér kveikjara
og tyggjópakka.
Hann vissi ekki að í fórum mínum væri
Undir Helgahnúk
1. útgáfa.
Bændablaðið
kaldhæðnislega undir handarkrikanum.
Eins og flestir, vissi hann ekki að jakkinn minn væri Dirk Van Saene,
hárið frá hnakkanum á horninu, umgjörðin á gleraugunum
vintage
vélin, Hasselblad,
framköllun á leiðinni, myndirnar verða sýndar í Gallerí Fegurð, sérsmíðaðir eikarrammar,
glerið
glampafrítt.
Sólin skín ekki á mig lengur.
-Háfleygur Þjálsson
Innsent 12.11.2026, birt 12.11.2026