Kæru Krantverjar,
ég er tryggur notandi Microsoft Word og kann vel við mig innan veggja þess ágæta forrits. Þó upplifi ég þar þrálát vonbriðgi. Þegar ég opna Orðið og fer að skrifa birtist textinn alltaf í hinni stöðluðu leturgerð Aptos. Hún lítur svona út:
Það líkar mér ekki. Aptos kemur mér fyrir sjónir sem óheiðarlegt. Þykjustu-hlutleysi. Fyrirtækja-minímal, spjallmennalegt. Ekki leturgerð að mínu skapi. Hvað varð um hið sígilda Arial eða Times New Roman? Jafnvel Calibri?
Lesandi góður ég hef lausnina (og hún er svo einföld!).
Til að breyta stöðluðu leturgerðinni í Orðinu þínu þarf einfaldlega að:
1. Opna skjal.
2. Slá inn texta og setja hann í þinn drauma-staðal.
3. Ýta á Ctrl + D (eða Cmd + D)
4. Smella á hnappinn „Default“ neðst í vinstra horninu
5. Velja seinni valmöguleikann: „Base all documents on the Normal template?“
Það er allt og sumt. Nú getum við öll opnað nýtt Microsoft Word-skjal og umsvifalaust hafist handa, án þess að þurfa að samræma letrið og vitundasrstreymið. Hiklaust.
Góðar stundir,
Hekla
Innsent 26.3.2026, birt 28.3.2026