Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Annað tölublað er komið út, endilega sendið inn efni fyrir þriðja tölublað á listanes.office@gmail.com 
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

tGLUGGAKRÓNIKA 10. FEBRÚAR

Ég sá hann í dag. Aftur. Hann stóð við gluggann sinn og reykti. Sjarmó. Ég velti því oft fyrir mér hvort hann sjái mig. Hann þyrfti samt að horfa upp til að sjá mig. Glugginn minn er á fjórðu hæð en hann býr á annari. Stundum opnar hann gluggann og starir íhugull á götuna. Alltaf á götuna. Halló! Ég er hér! Hérna uppi! Good things come to those who wait, ómar þá í hausnum mínum. 

Við kynntumst í bókaklúbbi. Bókaklúbbi með stóru bé-i, því í þessum klúbb var bara ein bók tekin fyrir: Biblían. Kynntumst er kannski svolítið stórt orð. Við vorum allavega bæði meðlimir, en líka 23 aðrir. Ég talaði kannski aldrei við hann en það voru svo sannarlega víbrur. Við fyrsta hitting fórum við hringinn og deildum öll nöfnum og einni skemmtilegri staðreynd. Ég á hund sem heitir Jack Sparrow og tannburstinn minn er gulur. Hann var sá eini sem deildi tveimur skemmtilegum staðreyndum. Hvílíkt sjarmatröll. Klúbburinn hafði það markmið að lesa alla biblíuna og hætta svo. Þetta tók okkur fjögur ár, en þessi ár voru the glory days. Á seinasta fundinum lásum við uppáhalds passíur og textabrot. Ég ákvað að lesa upp úr Jobsbók, 40:16-18; 

Sjáðu aflið í lendum hans
og kraftinn í kviðvöðvum hans.
Hann sperrir halann eins og sedrustré,
sinarnar í lærum hans eru samantvinnaðar,
beinin eru eirpípur,
leggirnir járnstengur.


Þegar ég horfði upp úr bókinni mætti ég augum hans. Þetta var engin tilviljun, þetta var guðsvilji.

Í dag eru akkúrat þrjú ár síðan bókaklúbburinn hætti og hann flutti í götuna mína. Hann hefur ennþá ekki litið upp. Bara ef hann vissi að ég væri tilbúin að fara í stríð fyrir hann. Bara ef hann vissi… 




Karl Rómans
Innsent 10.2.2026, birt 10.2.2025