Senda inn efni listanes.office@gmail.com KRANT
Þriðja tölublað Krantsins er komið í búðir, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv. Viðburðir
Krantverjar nær og fjær, ég hef verið með dellu fyrir einum manni. Sá maður er steindauður. Fílólás! Frá Króton (líklegast)! Ómerkilegur spekingur, eða hvað? Ekki finnst mér það. Allavega gleymdur, það er víst. Ég læt mynd fylgja. Meira kemur síðar í 3. tölublaði Krantsins.
Tómas van Oosterhout
Innsent 30.9.2025, birt 30.9.2025