Senda inn efni listanes.office@gmail.com Upplýsingar Slembigrein
KRANT
Senda inn efni listanes.office@gmail.com Upplýsingar Slembigrein
KRANT

FÁNATILLÖGUR

Ísland er een klein land og eyja í þokkabót. Öll hin löndin eru svo langt í burtu. Íslendingar eru tæplega fjögur hundruð þúsund talsins og það er ekki stór tala eins og achttien miljoen. Hvað á að gera í þvi? Mér finnst að Ísland ætti að sameinast öðru landi og stækka við sér. Og hvað þarf að gera þegar nýtt land verður til? Hanna fána fyrir nýja landið. Hér eru nokkrar tillögur að fánum ef Ísland skyldi sameinast öðrum löndum. Alsjeblieft.

Ef Ísland myndi sameinast Eistlandi og verða Éstland, óttist ei, ég er búinn að hanna fána.




Éstneski fáninn


Í því tilfelli að Ísland og Búlgaría skyldu sameinast og verða Búlgísland þá er ég búinn að hanna fána.



Búlgíski fáninn


Ísland og Þýskaland gætu sameinast og orðið Þískaland. Hvernig ætti fáninn að vera? Wees niet bang! Ég er búinn að hanna fána.



Þíski fáninn


Ísland og Austurríki? Austurland. Ég er búinn að hanna fána.



Austurlenski fáninn


Hugsið um þetta Íslendingar og hafið samband. Ég hef áhuga á fánum og fánagerð.

kv Hollendingurinn fljúgandi
Innsent 28.4.2025, birt 28.4.2025

© Krant 2025