Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er í vinnslu, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

FLÓÐHESTURINN (GLUGGAKRÓNIKA 3. MARS)

Presturinn horfir varfærnislega yfir sætaröðina til að kanna hvort einhver sé raunverulega að fylgjast með. 

Gummi skáld: Blessaður vert’ekk’að ofhugsa, ég er að hlusta!

Polli Prestur: Takk innilega Gummi minn… fyrir þetta innslag.

(fliss berst úr þriðju röð)

Gummi skáld: Nei, þakka þér!

Presturinn snýr sér við, þykist fletta í biblíunni en opnar tóbaksskrín og andar að sér kornóttu ögnunum. Ritningarlestur hefst og klárast, fólkið treður í sig oblátur og vín og kveður prestinn. 
Polli Prestur andvarpar og snýr lyklinum að kirkjunni í hinsta sinn, því í kvöld mun dauðinn hirða Polla prest.
                                        
           Hann var ógiftur og gekk alltaf um í stuttbuxum.

Nokkrum dögum síðar fannst Polli Prestur látinn í rúmi sínu. Bráðkvaddur.

- - - - - - - - - - - - - - - -

Gummi skáld og Jórunn Apríl eru að gramsa í dánarbúinu.

Jórunn Apríl: Elsku Polli, hann fékk ekki einu sinni að klára safnið sitt af Íslenskum postulínsforsetum, hann vantaði bara eina styttu!

Gummi Skáld: Akkúrat, þvílíkt volæði.

Jórunn Apríl: Já ég meina….. Hver stytta fer á allavega fimmtíuþúsund kall.

Gummi skáld: Mér sýnist hann einmitt vanta Vigdísi, karlpungurinn.

Jórunn Apríl dregur fram grænan vasaklút úr einum pappakassanum. Á vasaklútnum er útsaumuð mynd af óræðu dýri sem líkist flóðhesti með áletruninni 40:15.

Jórunn Apríl: Hvað er nú þetta?

Gummi skáld: Bara vasaklútur, augljóslega… eðjót.

Jórunn Apríl fer að bókaskápnum, nær í eina vel tætta og þvælda biblíu, flettir.

Jórunn Apríl: Hérna! Jobsbók, fertugasti kafli: „Líttu á flóðhestinn sem ég skapaði eins og þig, hann bítur gras eins og naut.”

Gummi skáld: Vá, það mætti halda að þessi maður hafi verið prestur…

Jórunn Apríl: Þegiðu Gummi, þú ert vonlaust skáld.

Gummi skáld býr til prumpuhljóð með munninum.

Jórunn Apríl: Ég skil bara ekki afhverju að myndi velja akkúrat þetta textabrot? Af öllum þeim sem eru til, þá valdi hann að vitna í þetta á vasaklútnum sínum? Eitthvað um flóðhest? Þetta virkar eitthvað svo random.

Gummi skáld: Förum heim, ég finn ekkert hérna sem veitir mér inspírasjón.

- - - - - - - - - - - - - - - -

Klukkan 2:34 lá Jórunn Apríl í rúmi sínu andvaka. Hún lagðist á hliðina með hægra eyrað að koddanum og með vinstra eyrað í átt að loftinu. Undarlegt hljóð virtist koma úr koddanum. Þung fótatök. Dúmm dúmm dúmm. Hún skipti um hlið, en fótatökin úr koddanum héldu áfram í vinstra eyranu. Dúmm dúmm dúmm. Loks þegar Jórunn Apríl náði að festa svefn dreymdi hana óhugnalegan draum. Skikkjuklædd vera sat á ógurlegri skepnu, geysistórum flóðhesti sem gekk þungum skrefum í átt að Jórunni. Dúmm dúmm dúmm. Klæði verunnar voru dökkgræn með gylltum útsaumum, gylltar keðjur láku niður meðfram ermunum og drógust eftir jörðinni svo það klingjaði með hverju skrefi. Jórunn gat ekki hreyft sig, en þegar hún leit niður sá hún ekki líkama sinn, aðeins svart tóm. Hún virtist vera ekkert nema meðvitundin án líkama. Flóðhesturinn kom nær, dúmm dúmm dúmm, þar til hann stansaði loks beint við hlið Jórunnar, eða það sem eftir var af henni. Einhverja hluta vegna vöktu þessar aðstæður ekki upp ugg og óró innra með henni. Hún fann vissulega fyrir ótta, en ekki af dauðlegum toga. Tilfinningin var nánast þægileg. Veran steig niður af skepnunni og nálgaðist Jórunni. Ljósræma steig niður að ofan, eins og einbeittur sólarstafur sem festi sig á andliti verunnar. Þetta var Polli Prestur.
 


Karl Hrollur
Innsent 3.3.2026, birt 3.3.2026

© Krant 2026