Kannski ef ég fer í hvítu slim skyrtuna... Eða hvítu slim skyrtuna og brúnu peysuna yfir... Ég er ekki búinn að losna nógu mikið við bumbuna til að vera bara í hvítu slim skyrtunni... Síðast þegar ég fór út að borða með Rannveigu bara í hvítu slim skyrtunni sagði hún að tölurnar væru að vinna of mikið fyrir kaupinu sínu. En Rannveig er ekki hér í kvöld.
Ég fer í peysuna yfir. Í kvöld er ekki kvöldið til að stíga út fyrir þægindaramman. Þægindaramminn er Kaldi bar og þar verð ég. Kannski sest falleg kona hjá mér ef ég býð henni drykk. Eða að minnsta kosti kona sem er dökkhærð. Sem hjálpar mér að gleyma brúnu lokkunum hennar Rannveigar. Ég fer í brúnu peysuna yfir.
Kiddi
Innsent 1.5.2026, birt 2.5.2026