Beðið eftir Godot - Samuel Beckett (Bók í Dós útgáfa)
Karakterar:
Þórhallur
Hugi
Ari
Tómas
Katla
Fundur 17
Instagram, myndir, skjár.
Kvöld.
Þórhallur, sitjandi á moldarhaug, baksar við að ná af sér stígvélunum. Grípur í þau með báðum höndum og togar. Gefst á endanum upp.
Þórhallur: (önuglega) Helvítis stígvélafjandi.
Ari: Ertu búinn að prófa að fara fallega úr þeim?
Þórhallur: Hvað heldur þú?
Katla: Ekkert við þessu að gera
Tómas: (blíðlega) Þetta minnir mig óneitanlega á eitt leikrit sem ég las einu sinni.
Dok
Katla: Já mig líka
Ari: (glottandi) Gæji sem hefur bara lesið eitt leikrit
Hugi: (Ofan í skurði)(lágt) Hjá-lp
Dok
Þórhallur: Hvaða leikrit?
Katla: flottur klúbbur sem þið félagarnir eruð í
Þórhallur: (springur) Hvaða helvítis leikrit?!
Dok
Hugi: (Ofan í sama skurði)(aðeins hærra núna) Hja-á-lpp
Tómas: (blíðlega) Beðið eftir Godot
Ari: Hver er það?
Katla: (hærra) Flottur bókaklúbbur sem þið félagarnir eruð í
Tómas: takk
Ari: takk
Þórhallur: Hvað er Godot?
Tómas: (sýpur hveljur) Það er leikrit
Hugi: (kíkir upp úr skurðinum) Lásuð þið það án mín?
Katla: þurfum við ekki að gefa því einkunn?
Ari: (glottandi) þurfum við ekki að gefa því einkunn?
Tómas: Þetta er alveg eins og í leikritinu Beðið eftir Godot
Þórhallur: (kjökrandi)(illt í fótunum)(ennþá í stígvélunum) Ja á-á-á-á
Katla: Ég held að ég gefi því 8.022 sjálf.
Tómas: 8.5
Hugi: 8.6181042 (Guð minn góður hvað þetta var skemmtilegt)
Ari: 8. cirka 2-3
Þórhallur: 9.5
Ari: (reiknar út) Ég held að meðaleinkunnin sé……(hikandi) sjöööööö?
Dok
Hugi: (ennþá ofan í skurðinum) Næsta bók er The First Bad Man eftir Miranda July.
Tjaldið.
Bókaklúbbinn Bók í Dós má finna á Instagram
Adíós, Bók í Dós
Innsent 13.9.2025, birt 13.9.2025