Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT
Þriðja tölublað Krantsins er komið í búðir, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir
Upplýsingar
Slembigrein
Tásur undir rós.
Það er bara svo gaman þegar hlutir eru undir rós. Átti til dæmis samtal um daginn undir rós. Svo gaman. Það var við konuna á móti, þessa sem er með nefið þarna. Hún lenti í dotlu. Ég sagði henni að hún hefði örugglega gott af því að tala við einhvern sem er náinn henni, einhvern sem hún treystir.
Svo benti ég henni líka á að það sést svoldið vel inn til hennar. Það er svona vis-a-vis og ég kemst stundum ekki hjá því að sjá inn í íbúðina hennar. Það er bara gott að fólk viti af svoleiðis.
rósir og friður til allra
Innsent 13.5.2025, birt 13.5.2025