Senda inn efni listanes.office@gmail.com Upplýsingar Slembigrein
KRANT

LÍTIÐ LJÓÐ DAGSINS UM BRAUÐ 8. MARS 2025



  • Anna Kristín keypti sér einu sinni 
  • brauð
  • sem var holt að innan
  • Í holarými brauðsins er alltaf rakt
  • og myrkt
  • fyrir utan
  • gatið á toppnum
  • því í gegnum það skín sól
  •   frá 13:00-15:00

  •    Spottlæt!

  • Andarnir setja á svið leikrit...
  • Dæmisögur um dauðann
  • Framtíð Önnu Kristínar er leikin á pínulitlu sviði
  • Guli-andinn far með sannfærandi einleik
  • nær henni alltof vel
  • Allir í salnum anda á sama tíma
  • anda að sér röku brauði
  • og anda að sér útöndun annarra
  • Þangað til útöndunin verður svo rök
  • og heit
  • að hún leitar upp í loft hvelfingarinnar
  • alla leið að gatinu
  • en gefst þar upp
  • kólnar
  • og rignir yfir gestina


Katla skrifar lítið ljóð