Senda inn efni listanes.office@gmail.com
KRANT

Þriðja tölublað Krantsins er komið í búðir, við þökkum fyrir allar innsendingar. Endilega sendið inn efni á listanes.office@gmail.com fyrir fjórða tölublað.
Tökum við öllu efni, ljóðum, greinum, pælingum, bloggpóstum, myndum o.s.frv.
Viðburðir

Upplýsingar


Slembigrein

BESTU OG VERSTU SETNINGARNAR ÚR ÁSTIN, LJÓÐLISTIN EFTIR PAUL ÉLUARD.


Þær bestu:

Kossar dynja á framtíðinni     (Í fyrsta lagi I)
>Algjörlega. Von um betri tíma; alltaf til í það. Framtíðin er falleg við skulum kyssa hana!


Augu hennar eru turnar úr ljósi     (Í fyrsta lagi II)
>Þessi dramatísk en ég er tilbúin í hana. Ég er svög fyrir því að augu séu meira en bara augu og hugmyndin um turnana býr til fallega mynd í hausnum mínum sem gengur upp.


                                                                                                Dæmi um mynd.

Þú ein ég heyri grösugan hlátur þinn     (Í fyrsta lagi VI)
>Kannski því grösugi hláturinn er svo prakkaralegur.

Öll sólin á jörðinni
Á vegum fegurðar þinnar     (Í fyrsta lagi VII)
>Annað veldi af því að „sjá ekki sólina fyrir einhverjum“. Sólin er ekki bara ómerkilegri heldur en viðfangið, heldur er eini tilgangur sólarinnnar að lýsa upp viðfangið. 100% öfundsjúk út í þann sem þessi lína var tileinkuð.

Kjölfar arma þinna utan um mig 
Eins og loga til merkis um landnám     (Í fyrsta lagi VIII)
>Mér finnst þetta kjölfar arma mjög spennandi. Ég get bæði ímyndað mér að það eigi við tilfinninguna sem armarnir skilja eftir sig eða að faðmlagið sé svo innilegt að ekki einungis armarnir heldur líka kjölfar þeirra (búkurinn) vefur sig utan um ljóðmælanda. Seinni setningin gefur til kynna að fyrri tilhgátan sé réttari, þessi draugatilfinning eftir armana logar til að láta vita af því að hér hafi land verið numið.

Heill lifandi heimur milli dauðra stjarna     (Í fyrsta lagi X)
>Hér er vonin líka þó vissulega raunsærri en áður. Þó búið sé að deyða tvær stjörnur er ennþá heill lifandi heimur á milli þeirra sem hægt er að leita til, kanna og nýta til að skapa eitthvað nýtt.

Ástfangin í laumi bakvið bros þitt     (Í fyrsta lagi XIII)
>Það er alltaf sexí að vera ástfangin í laumi.

Svefninn tók af þér mót     (Í fyrsta lagi XIV)
>Mér finnst þetta meika svo mikinn sens þó ég geti ekki útskýrt það neitt nánar.

Lifandi lifandi
Ég lifandi hún lifandi     (Í fyrsta lagi XV)
>Takturinn er fyndinn og skemmtilegur. Kannski tók ég þessar línur sérstaklega fyrir því þær eru ólíkar öðrum línum og endurtekningin verður gott kjams fyrir lesandann.

Hárið flaksast hóflaust þrumuveður heldur kverkataki     (Í fyrsta lagi XVII)
>Mér er þannig séð sama um hárið en það er rosa kunnuglegt að þrumuveður taki mann kverkataki.

Tönnum læst í eldinn     (Í fyrsta lagi XIX)
>Þú nefnir tennur og ég fæ líkamlegt viðbragð.

Dagrenning ég elska þig ég er með alla nóttina í æðunum     (Í fyrsta lagi XX)
>Ég hef svo ótrúlega mikinn húmor fyrir þessari setningu, hún er mjög væmin en hún er líka svo skemmtilega mikil romsa þar sem hún er ekki með neinum greinarmerkjum.

Enni að rúðu einsog vaktmenn sorgarinnar gera     (Í fyrsta lagi XXII)
>Hversu emó! Ég hugsa um að vera unglingur í strætó að hlusta á Creep (tilbúin minning) og þrýsta enninu að rúðunni. „Vaktmenn sorgarinnar“ verða svo spot on karakterar.

Þagnarferð
Handa minna til augna þinna     (Í fyrsta lagi XXIII)
>Sé þessa sló-mó senu fyrir mér og ég dýrka hversu dramtísk hún er.

Stjarna sem heitir himinblámi
Form hennar er jarðneskt     (Í fyrsta lagi XXVII)
>Jörðin er svo mikil dúlla.

Allt sem endurtekur sig er óskiljanlegt     (Í fyrsta lagi XXVIII)
>Ég er sammála. Þessi setning nær utan um einhverja tilfinningu sem ég botna ekkert í.

Víst þurfti eitt andlit
Að svara öllum nöfnum heimsins.     (Í fyrsta lagi XXIX)
>Guð í okkur öllum? Þú ert Guð, ástin mín... Ég fæ gæsahúð...

Þær verstu:

Blindingi sem man eftir höndum þínum 
Spennir boga brjósta þinna     (Í fyrsta lagi III)
>Hata að brjóstin séu spennt upp og hver ætli blindinginn sé?

Ástin mín þú tókst á þig mynd þrár minnar     (Í fyrsta lagi VIII)
> Finnst þessi perraleg.

Settir varirnar á orðhimin þinn eins og tungl     (Í fyrsta lagi VIII)
> Þetta er alltof háfleygt fyrir minn smekk.

Augu þín elskast um hábjartan dag     (Í fyrsta lagi IX)
>Eina sem ég fæ í kollin er að hún sé rangeygð.

Þú kemur í stað þess að vakna.     (Í fyrsta lagi IX)
>Finnst þessi yfirlýsing toxic á mjög boring hátt.  

Ástfangin það fer henni vel að vera falleg     (Í fyrsta lagi X)
>Ó fer það henni vel? Hver spurði.


Þybbið þolgæði skipulögð óþolinmæði     (Í fyrsta lagi XII)
>Skil ekki hvað þetta þýðir, þessi orð eru fáránleg saman.

Allsnakin ertu ástarorðin 
Leiða brjóst þín og háls í ljós     (Í fyrsta lagi XIII)
>Oj, alltof alltof perraleg.

Henni er vaggað af holdi titrandi beitiland     (Í fyrsta lagi XVII)
> Ég skil þetta bara ekki. Framkallar enga sérstaka mynd. Samhengislaus perraorð.

Yfirgefið fórnarlamb skugganna     (Í fyrsta lagi XVII)
> Öll dramtískustu orðin í einni setningu.

Atlot á litinn eins og syndaflóð     (Í fyrsta lagi XIX)
>Finnst þetta smá oj. Þetta er mjög horní pæling, gæti átt heima í Rauðu seríunni til að lýsa                 einhverjum þrusufullnægingum. Ef að þessi ljóðabók væri húmorískari færi þessi setning e.t.v.             hringinn.

Ef þú ferð opnast dyr inn í sjálfan mig.     (Í fyrsta lagi XX)
>Hér er eitthvað eitrað á ferð, þó ég skilji ekki hvað þetta þýðir.

Hvar eru hendur þínar og hendur atlotanna     (Í fyrsta lagi XXVI)
>Eru þetta einu og sömu hendurnar sem verið er að tala um eða sitt hvort handaparið? Annars er almennt og mikið talað um atlot í þessari bók.

Hendurnar koma í ljós úr blóði sínu 
Atlotum sínum     (Í fyrsta lagi XXVII)
>Hata þessi endalausu atlot. Hata þetta blóð í tenglsum við þessi atlot.

Bakvið móðu kossa okkar     (Í fyrsta lagi XXVII)
>Of basik. Gerir ekkert fyrir mig.

Til þess að taka þátt í unaði þínum 
Lita ég mig þjáningu.     (Í fyrsta lagi XXVIII)
>Þetta er oj en líka bara hallærislegt. Finnst nógu erfitt að minnst sé á unað, vil alls ekki fá þjáninguna strax í næstu línu.

Katla B.G.
Innsent 29.4.2026, birt 29.4.2026

© Krant 2026